top of page

 

 

 

 

Öryggismál

 

Öryggismyndavélar eru á staðnum og fylgjast með aðstöðu og búnaði.

 

Aðstaða / Ábyrgð

 

Sá sem bókar aðstöðuna er ábyrgur fyrir hvers kyns tjóni af völdum misnotkunar eða gáleysis sem verður á þeim tíma sem þeir hafa aðstöðuna bókaða. Hleypið engum öðrum inn í rýmið sem ekki er á ykkar vegum, þeir sem eiga erindi/bókaðan tíma í aðstöðuna fá sendan kóða og komast inn aðstoðarlaust. Persónulegar eigur viðskiptavina eru ávallt á þeirra eigin ábyrgð.

​

Aldurstakmark

Iðkendur 2014 og yngri geta ekki verið í aðstöðunni án þess að vera í fylgd fullorðinna. Greiðsluaðili ber ábyrgð á tjóni af þeirra völdum ef þessi regla er brotin.

 

Mæting / Tími

 

Mikilvægt er að sýna öðrum þá tillitsemi og virðingu sem maður vill sjálfur fá, mætum á réttum tíma og hættum á réttum tíma. Ef enginn er með bókaðan tíma á eftir þér slökktu þá á búnaði og ljósum þegar þú yfirgefur aðstöðuna.

 

Umgengni

 

Göngum vel um aðstöðuna og skiljum við hana eins og við komum að henni. Setjið rusl í ruslafötur og dósir í dósafötur.

 

Skór

 

Til að halda aðstöðunni hreinni og til að vernda grasið verður að fara úr útiskóm við inngang og aðeins nota skó sem eru hreinir á grasmottunum.

 

Golfboltar og kylfur

 

Boltar sem eru skemmdir, óhreinir eða merktir með túss geta skemmt/skilið eftir sig far á tjaldinu, því er eingöngu leyfilegt að nota bolta sem eru ómerktir, heilir og hreinir.

 

Kylfur verða einnig að vera hreinar af sömu ástæðu, til að vernda tjaldið og grasið. Hægt er að þrífa kylfur og bolta í aðstöðunni áður en leikur hefst.

 

Veitingar

 

Sjálfsafgreiðsla er í aðstöðunni, greiða skal fyrir drykki úr kæli og sælgæti áður en það er tekið til neyslu. Leiðbeiningar fyrir sjálfsafgreiðslu eru á staðnum. Verum ábyrg og gætum þess að veitingar skemmi ekki búnað.

 

Samskipi / Aðstoð

 

Aðstaðan er byggð á sjálfsafgreiðslu, engir starfsmenn eru á staðnum. Vinsamlegast tilkynnið öll vandamál sem kunna að koma upp við notkun aðstöðunnar í gegnum tölvupóst á teigurinn@teigurinn.is eða í gegnum heimasíðu. Ef upp koma neyðartilfelli þá eru símanúmer skráð á veggplatta á veggnum við enda inngangsins.

Staðarreglur 

Skilmálar og skilyrði

 

 

 

 

Upplýsingar um félagið:

Golfstofan ehf
kt. 520126-1470
Vesturbakki 1 – bil 5. Bílastæði og inngangur bakvið húsið
815 Þorlákshöfn
email: teigurinn@teigurinn.is

​

Staðfesting

Þegar þú hefur lokið við að bóka í bókunarkerfinu færðu tölvupóst með bókunarnúmeri og kvittun fyrir þjónustukaupunum. Kvittun jafngildir ekki afgreiðslu, við áskiljum okkur rétt til að bakfæra pöntun ef grunur um einhvers konar misferli vaknar.

​

Greiðslur og öryggi við pantanir – dulkóðun

Eftirfarandi kort er hægt að nota í bókunarkerfi okkar:

Visa
Visa electron
Mastercard
Maestro
Greiðslan mun birtast á kortayfirliti þínu á sama hátt og almennar færslur í verslun.

​

Netverð (verð)

Uppgefið verð í bókunarkerfi okkar er í íslenskum krónum. Athugið að verðbreytingar eru ekki auglýstar fyrirfram. 

Vinsamlegast athugaðu að verðið i bókunarkerfinu getur breyst án fyrirvara og að öll verð eru birt með fyrirvara um prentvillur.

​

Afbókanir – endurgreiðsla

Við bjóðum upp á endurgreiðslu bókunarkerfinu ef afbókun berst innan 12 tíma áður en bókaður tími byrjar. Afbóka verður með því að smella á vefslóð (URL) sem fylgdi með í staðfestingapósti fyrir bókuninni.

Einnig er hægt að senda tölvupóst á teigurinn@teigurinn.is og afbóka innan 12 tíma áður en bókaður tími hefst.

Ef greitt hefur verið með korti í netbókun, er endurgreiðsla framkvæmt sjálfvirkt inná það kort sem notað var við bókun. Ath að endurgreiðsla getur tekið 1-3 daga.

​

Öryggi vefsvæðis

Við setjum öryggi viðskiptavina okkar á oddinn. Við notum bestu tækni sem völ er á til að tryggja að allar greiðslur séu öruggar. Notast er við SSL kóðun til að tryggja dulkóðun kortanúmersins og annara persónugagna, en kóðunin uppfyllir ströngustu kröfur um gagnavernd á netinu.

Við vistum engar kortaupplýsingar á vefþjónum okkar eða vefsvæðum.

​

Varnarþing

Þessi samningur er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir íslenskum dómstóli.

bottom of page