top of page

Stofnun

Aðstaðan og stækkun

Teigurinn Golfstofa

Hugmyndin um Golfherma aðstöðu í Þorlákshöfn er ekki ný á nálinni, mikið var talað um stofnun slíks félags síðustu árin og þá sérstaklega í kringum golfstarfið. Í lok Nóvember/byrjun Desember 2025 var hugmyndin komin aftur í loftið og að lokum á teikniborðið.

Eftir talsverða hugarsmíði var Golfstofan ehf svo formlega stofnuð af Hallgrími Þór Axelssini og Ingvari Jónssini þann 02.01.2026. Þrátt fyrir mörg verkefni þá reyndist erfiðast að finna nafn á fyrirtækið og aðstöðuna. Hugmyndir eins og "Glompan, Swing Club, Sandurinn" voru ofarlega á listanum en eftir aðstoð vina og vandamanna þá varð Teigurinn Golfstofa fyrir valinu.


Báðir félagarnir eru fjölskyldumenn og í fullri dagvinnu ásamt öðrum skuldbindingum en unnið var frá morgni til kvölds alla daga frá um miðjan Desember þar til sunnudagsins 01.02.2026 þegar Teigurinn Golfstofa var formlega opnuð og bókanir í herminn gerðar aðgengilegar almenningi.

Við stofnun Teigsins var upphaflega hugmyndin að byrja á aðstöðu með tvo eða þrjá golfherma.
Niðurstaðan var þó sú að ákveðið var að gæta hófs við stofnun fyrirtækisins og byrja aðeins á einum
hermi. Rúmu hálfu ári síðar hefur framkvæmdum við stækkun aðstöðunnar verið hrint af stað. Stækkað verður í skrefum, fyrst verður bætt við einum hermi og aðstaðan stækkuð upp í tvo, þriðji hermirinn er svo áætlaður fljótlega í byrjun árs 2027.

bottom of page